23.12.2008 | 12:17
Eitt ljóð enn!
Ákvað að setja hér inn ljóð sem ég fékk í afmælisgjöf þegar ég varð 35 ára frá einni dóttur minni sem þá var á unglingsaldri.
Af hverju?
Af hverju trúir þú öllu
sem þessi litli munnur segir?
Af hverju leyfir þú allt
sem þessar litlu hendur gera?
Af hverju skilur þú allt
sem litla höfuðið hugsar?
Af hverju leyfir þú mér að gráta
þegar ég þarf á því að halda?
En, elsku mamma
nú skil ég allt.
Þú varst einu sinni
með stóra drauma
í lítilli sál.
Alveg eins og ég.
Höf. Gósk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.12.2008 | 09:23
Tvö ljóð!
Set hér inn 2 ljóð eftir hana dóttur mína!
Vinur
Hljóðlaust tár rennur niður kinn mína,
sál mín hljóðar af sársauka,
ég græt innra með mér,
finn svo mikið til.
Ég er hrædd, svo hrædd,
veit ekki hvar ég er...
Því get ég ekki fundið sjálfa mig?
Því get ég ekki fundið leiðina heim ...?
En ég gleymdi því ...
ég hef aldrei komið þangað
og veit ekki hvar það er,
ég á víst hvergi heima.
Ég er bara vinur á leið um ...
kem bara við, stoppa stutt.
Veit ekki hvaðan ég kem
eða hvert ég fer ...
hvort ég komi nokkurn tímann aftur.
Kæri vinur, ef þú hittir mig,
ekki reyna að tengjast mér,
ekki reyna að skilja.
Og vertu ekki sorgmæddur
þegar ég fer.
Það er bara sóun á orku,
sóun á tilfinningum.
Ég er aðeins vinur á leið um ...
Höfundur: Alexía Nótt
Þeir sem hvísla
Ligg hérna andvaka og þykist sofa ...
reyni að losna við þá sem hvísla ...
Þeir hvísla um hið liðna
og það sem er ókomið enn.
Þeir hvísla um mig og fólkið mitt
og líka hina sem ég þekki ekki neitt.
Stundum hvísla þeir notalega,
og hlýleg orð hljóma í höfði mínu.
Stundum eru þeir grimmir
og hvísla að mér hræðilegum orðum.
Hræðilegum orðum sem bergmála í höfðinu á mér
orðum sem einhvern veginn virðast 1000 sinnum sterkari
heldur en allt annað sem ég skynja.
Ég get ekki svarað,
má ekki hvísla á móti,
því þá hætta þeir að hvísla
og byrja að tala fullir ákefðar.
Ef ég bara þykist sofa ...
þykist ekkert heyra ...
þá kannski, bara kannski,
hverfa þeir á braut.
Ég þrái að fá að vera í friði,
þrái að fá að sofa.
Er svo þreytt, svo þreytt ...
"Reyndu nú að sofa aðeins"
heyrist hvíslað,
og mér líður vel,
á þessari stundu
eru þeir hlýlegir.
Höfundur: Alexía Nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.11.2008 | 16:05
Ráð fyrir konur!!!
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf
járninu og einn banana til að fá kalíum.
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af
grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki
gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa
því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það)
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn
skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag
mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og
drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red
Bull í ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá
búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar
heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar,
fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað
sinnum.
Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á
dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta; á
eftir banananum, tannbursta ...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma
tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,
því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar,
tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm
sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu
þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki
gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í slíkt, því daglega áttu
að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir
15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf
að vökva þá daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef
þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og
eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að
vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um
tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka
af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á
þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til
dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig
lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með
tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með
makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á
meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því
að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með
jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta
þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn
eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann,
bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd
um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.
Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt
fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
Kveðja, þín vinkona...
Fékk þetta sent frá einni systur minni. Mátti til að birta þetta hér!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2008 | 08:58
Það sem ég hef haft á milli handanna undanfarið!
Fyrst ber að telja Móður og Barn, það gengur bara ágætlega með hana, þó ekki alveg búin!
Svo er konan með eitthvað á prjónunum sem setja á með öðru í jólapakkana.
Eitthvað er konan að " Bucillast" líka....
og auðvitað er líka verið að sauma eitthvað svona jóla.. jóla....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.11.2008 | 19:51
Leyni- SAL
Það var verið að gera Leyni-SAL í saumaklúbbnum hjá okkur um daginn. Svo áttum við að senda inn myndir og kjósa svo um hvaða útfærsla væri flottust. Hrönn systir vann með þessa glæsilegu útfærslu hér fyrir ofan. Mín mynd birtist svo hér fyrir neðan til samanburðar , þannig að þið sjáið hvað getur breytt miklu um lokaútlit hvaða litur af garni er notað og í hvernig java er saumað...............
Verð nú að viðurkenna að mér fannst ekki eins gaman að gera þetta stykki og hin Leyni-SAL stykkin sem ég er búin með, þegar maður er að gera einn lit í einu..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.11.2008 | 17:30
Er á lífi enn!
Hef ekkert verið mjög dugleg að "blogga" undanfarið, en er sem sagt á lífi og við þokkalega heilsu! (Er að jafna mig eftir einhverja kvefpest, endaði með "skútubólgu" og er komin á syklalyf) 
Hef oft velt því fyrir mér hversu mikið stress hefur áhrif á líkamlega líðan, alla vega enda ég oft með að verða veik ef mikið er búið að ganga á hjá mér 
Layla mín er búin að vera mikið veik´, búin að vera inn á deild í nokkrar vikur, er heldur að hressast sem betur fer. Þurfti að gera það sem ekki á að leggja á neinn aðstandenda, hvorki foreldri, maka, barn né aðra; þurfti að sækja um nauðungarvistun fyrir hana. Þó ég væri búin að ákveða fyrir mörgum árum að ef til þess þyrfti að koma ( nauðungavistun eða svipting) þá myndi ég gera það, þá reyndist það mér mjög erfitt er til framkvæmda kom. Fyrir þá sem ekki vita það er þetta úrræði sem hægt er að grípa til ef einstaklingur er það veikur að hann er talinn hættulegur sjálfum sér eða öðrum. Læknir getur nauðungavistað manneskju í 2 sólahringa, ef það dugir ekki til verður aðstandendi að fylla út umsókn og senda til dómsmálaráðuneytis, ásamt úrskurði tveggja lækna; er manneskjan þá nauðungarvistuð í 21 dag. Þetta var erfitt fyrst, ég fór suður þegar 5 dagar voru liðnir, þá var skiljanlega mikil reiði og mikill sársauki; en hún hlustaði á mín rök og samþykkti að við kæmum aftur til hennar daginn eftir. ( vissi ekki að við værum væntanleg, ég og minn elskulegasti, stendur alltaf við hlið mér, sama hvað gengur á
) Daginn þar á eftir fór hún að borða aftur ( ekkert búin að borða í viku) Núna eru liðnar fimm og hálf vika og ég held að hún sé búin að fyrirgefa mér! Líðan hennar er öll miklu betri, þunglyndið að mestu horfið, en alltaf þarf hún að kljást við raddirnar. Hún er núna heima í helgarleyfi og kemur svo í ljós eftir helgina hvert framhaldið verður. Ég fer ekkert ofan af því að geðsjúkdómar eru með erfiðustu sjúkdómum sem hægt er að fá, og því miður geta þeir verið banvænir!!´
Veit ekki hvað fólk segir yfir að maður sé að setja þetta á bloggið, en því skildi maður ekki segja frá þessu eins og ýmsu öðru sem fylgir því að vera aðstandendi sjúklings eða sjúklingur sjálfur
En svo maður snúi sér að öðru, ég hafði það LOKSINS af að klára ritgerðina og er því komin með skírteini upp á það að vera orðin Svæða- og Viðbragðsfræðingur 

Fyrst ég hafði það nú af að klára ritgerðina, dreif ég í því að sækja um nám eftir áramót
en svo kemur það nú í ljós, hvort þeir vilja taka við mér
Ég fór tvisvar suður í síðasta mánuði, fyrst á Sjávarútvegssýninguna og svo á aðalfund Landsambands Smábátaeigenda, þar hafði ég tekið að mér að vera fundarritari eins og einhver undanfarin ár.
Auðvitað var notað tækifærið og dæturnar og barnabörnin heimsótt 
Held að ég sé búin að segja nóg í bili 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 08:23
Orðlaus!
Veit ekki hvað maður á að segja um ástandið í þjóðfélaginu þessa dagana! Sennilega best að segja sem minnst, því fæst orð bera minnsta ábyrgð!
Set hér inn mynd af einni prinsessunni minni í peysu sem amma prjónaði!
Sendi ljúfar kveðjur út í haustið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.10.2008 | 08:34
Farin til Reykjavíkur!
Ætla að skreppa til Reykjavíkur, kíkja á börn og barnabörn og svo auðvitað Sjávarútvegssýninguna!
Hafið það gott elskurnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.9.2008 | 18:02
Klukk!
Ragjó klukkaði mig fyrir 2 vikum síðan, svo sennilega er best að reyna að svara þessu.......
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Rafvirkjun, Loftskeytastöð, Beitning, Verslunarstörf og fl, og fl.
Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
Allar ævintýra- og spennumyndir.
Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:
Hólmavík, Ísafjörður, Hnífsdalur og Bolungarvík. (Sem ég segi, VESTFIRÐINGUR í húð og hár)
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
House, spurningaþættir, nátturulífs- og fræðsluþættir, lögregluþættir.
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Kúba, Egyptaland, Kanarí og Færeyjar, fyrir utan alla fallegu staðina hér á landi.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
bb.is, mbl.is, yahoo.com og facebook.com.
Fernt sem ég held uppá matarkyns:
Lambakjöt, Fiskur, laukur af öllum stærðum og gerðum og ostur!
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Hmm, sennilega yrðu það þá allskonar handavinnu- og uppskriftarbækur, Biblían og sumt eftir Þórberg.
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
skordalsbrynja
annaschmidt
orverpid
hallasigny
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)




laylaislost
bjarnardottir
ragjo
madddy
tigercopper
zordis
ylfamist
astroblog
ingibjorgran
orverpid
iso-best
um683
harpao
hross
hallasigny
hallaj
skordalsbrynja
kruttina




